;;bubblegum;;

Tina, you fat lard, come get some DINNER!... Tina, eat. Food. Eat the FOOD!

30.06.2006 09:37:00 / Agnes

halló

Já lömbin mín, ég hef ákveðið að svíkja blog.central.is og færa mig yfir á bloggar.is

www.agnesonu.bloggar.is ef þið voruð að velta fyrir ykkur hvað það væri=)

endilega kíkið á þetta


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.06.2006 12:00:49 / Agnes

á morgun ha?

;; Angel-Sarah Mclachlan ;;

;; Suður á morgun beibí! ;;

Mín bara að fara suður á morgun, með henni Aldísi. En vá! í gær fékk ég bara biggest treat sem ég gat hugsað mér.  Ég var að þrífa bílinn minn, stoppaði svo og fór að tala í símann sat eitthvað fyrir framan bílinn, upptekin í símanum.  Svo þegar ég var búin í símanum, skellti ég á stóð upp. Og viti menn! hver stóð fyrir framan mig, engin önnur en hún ELSA!! vá hvað það var frábært, stökk upp og öskraði, svo endalaust gaman að sjá hana aftur.  Svo um kvöldið fór ég út í vík til hennar og svo fórum við og komum Steinu á óvart og svo að lokum Aldísi! við erum kostulegar, og það var tekinn smá stelpurúntur. Frábært að hitta þær allar saman:D

Ég er orðin smá spennt fyrir að skella mér suður, en ég á samt örugglega eftir að venjast því þegar líður á sumarið, því mig langar að vera sem mest á ferðinni, það væri alveg frábært ef ég gæti það.

En ég er búin að vera að læra helling af nýjum hlutum í dag, þannig maður er farinn að gera mun meira gagn hérna á Sýsló.

;; Easy! Massage the scalp. You're washing a baby's hair, not scrubbing vomit off your Christmas dress, you holiday drunk.;;


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.06.2006 08:15:36 / Agnes

perlur og svín

;; Nik&Jay- Lækker ;;

;; finally sól ;;

Ójá! það er kom sól! ótrúlegt en satt. Vaknaði í morgun og þá var bara sól innum gluggann.

Í gær eftir vinnu skellti ég mér í ræktina, sem er nú bara fastur liður af deginum. Fór svo strax heim í sturtu og svo beint að taka til.  Kominn tími til. Líka í dag, búin að ákveða að þrífa bílinn minn.  örugglega nammi e-s staðar í honum eftir mig og Steinu.  VIð erum svo miklir snyrtipinnar. Þá er ég að meina að ryksuga hann og svona.

en nóg með það, ég þoli ekki hvað það er bjart á næturnar þegar maður er með það í hug að sofa! þegar maður leggst uppí rúm og alveg þvílíkt þreyttur. Já neinei kemur ekki bara þessi rosa birta inn til manns og maður gerir mest lítið af því að sofa.  Bara rúlla sér fram og til baka eins og rúllupylsa.

En já svo er síminn minn líka að koksa eitthvað.  Sambandið alltaf að detta út, sá það alveg í gær hvað síminn minn er hörmulegur.  Þannig var alltaf hringt aftur og aftur.  Og eitt, frjáls framlög til símakaupa eru mjög vel þegin.  Langar í e-n flippara takk. Sem minnir mig á það að ég ætti kannski að fara að skoða síma.

En núna á helginni, þá er ég vonandi að fara með henni Aldísi suður. Road trip nr 2 á stuttum tíma. Arnar og Karen í rvk þannig það er alveg 100% ástæða til að fara.

Vinnan kallar. Laters

ég bara VARÐ að bæta þessari mynd inná, hvað ætli þessi maður starfi við?

;; iguana bowls, collect the whole set ;;


» 9 hafa sagt sína skoðun

27.06.2006 08:52:57 / Agnes

morgunblogg

;; Jeff Buckley-Halleluja ;;

;; I feel gooooood ;;

Já ég get sagt eins og er að mér líður frábærlega.  Þótt það sé ekki meira liðið af deginum en þetta.  Ég ætti að vera geispandi hérna og ekki nenna neinu, en ég er hress samt sem áður.  Eitt sem ég gleymdi að minnast á á blogginu í gærmorgun.  Það var þannig að ég og Guðný vorum að labba niður af efra bílaplaninu í kringlunni og heyrum allt í einu alveg geðveikislega hlátur..svona hlátur eins og nördinn í revenge of the nerds, einn af þeim meina ég.  Við litum furðu lostnar á kínverska konu sem labbaði á móti okkur og leist ekki á blikuna, en ég leit svo upp e-a hluta vegna og þá var þessi spastíski mávur þarna uppi, með galopinn kjaftinn, tjá sig eitthvað.  En þetta vakti mikla lukku hjá okkur, við hlógum eins og fávitar lengi eftir þetta.

Í gær, skellti ég mér í ræktina eftir vinnu, var frekar fyndið þar sem að ég var að labba inn í stúdíóið og hrasaði í tröppunum. Ískraði alveg í mér þegar ég datt.  Ég var þar í einn klukkutíma sirka.  Fór með geisladiskana mína upp og fór í spinning.  Endalaust þægilegt að vera þreytt eftir svona.

Ég er alveg búin að sjá það að þótt ég sé að púla og maður ætti að vera uppgefin, þá hef ég alltaf helmingi meiri orku, og langar þar af leiðandi ekkert í nammi.  Sem er bara mjög gott. Ég  hellti mér samt í nammiát yfir helgina.  Einar var svo góður þegar ég og Steina vorum að koma og kveðja Aldísi í Bónus, að hann keypti handa okkur nammi, drengurinn var líka búinn að fá ný útborgað. Sem minnir mig á það, ég get ekki beðið eftir að fá útborgað.  Ofur sniðugt, ég hef alltaf fengið í Bónus og þar sem ég hef verið að vinna, bara lagt inná reikning og ég fæ bara kvittun um að launin séu komin.  En hérna fær ég ávísun senda heim.  Þvílíkt sniðugt. I like it alot.

Image hosted by Photobucket.com

Í gærkvöldi lagðist ég uppí rúm og ég nennti ekki neinu, horfði á  Batman Begins. Svo þegar leið á kvöldið tók síminn minn við og talaði ég í hann í dágóða stund=* Gæti ekki vera án símans. Ég er svo ..samskiptaheft fyrir utan símann. eða svona, you know

;; To the world you may be one person,
but to one person you may be the world.
;;


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.06.2006 19:44:23 / Agnes

blögögger

;; Benny benassi- Love is gonna save us ;;

 ;; góður fílingur ;;

Ég ákvað að vera sniðug og smella einni mynd inn sem var tekin á helginni, reyndar tekin í síma, engin svaka gæði.

Karen og ég

En þetta var stuð, núna er ég bara þvílík löt og nenni ekki að gera neitt, það er ávallt stuð! commenta og gestabókaskrif, takk!=*

 ;; Gwagggg;;


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.06.2006 08:31:17 / Agnes

jahá

;; Aggro Berlin- Bums Mich ;;

;; ég hata endur. ;;

Jæja, ég er þá komin heim eftir þessa Rvk ferð.  Ég er nú samt frekar þreytt eftir allan þennan akstur, en mér gekk mjög vel að keyra og svona fyrir sunnan, miða við að ég hafi aðeins haft bílprófið í 10 daga.

Föstudagur: Ég og Steina hittumst eftir vinnu, báðar búnar að vera að missa okkur sökum spennu og vorum að leiðinni að missa legvatnið okkur hlakkaði svo til.  Við komum til rvk um klukkan 10.  Þá fórum við beint til Stebba bró. Hann var bara með hvorki meira en minna en hummer í innkeyrslunni.  Eftir smá fór ég með honum að leita af húsinu hennar Karenar.  Endalaust fyndið að sjá fólk, horfir alveg 8| á bílinn.  En já, svo fundum við það, og Karen kom með mér á rúntinum á honum Þórði8)  Svo sóttum við Steinu, Guðný og Anton og skutluðum þeim, svona 300 metra, hehe;P En eftir það var haldið áfram að rúnta, fékk að prófa bílinn hans Magga8) En svo fór ég heim og steinsofnaði.

Laugardagur: Ég vaknaði ekkert alltof snemma.  Vaknaði um klukkan 12.  Man ekki alveg í hvaða röð ég gerði hlutina.  En ég hitti Steinu og við fórum og keyrðum niður í Smáralind, þar sem Guðný og Elsie voru.  við fórum að sjoppast e-ð í smáralind og kringlunni.  Verslaði mér einungis spöng þar:O ótrúlegt en satt, en varð samt ástfangin af buxum þarna! Kíktum svo á laugaveginn þar sem ég keypti mér naflahring og bol.  Svo skutlaði ég stelpunum heim og fór til Stebba.  Þar var Erna bara ein heima og við ákváðum að skella okkur á Nings. Ég kom heim og tók mig til og fór í bíó á the Omen.  Verð bara að segja að DJÖFULL hata ég þennann krakka!!URG!  En já, eftir myndina fór ég og sótti Karen heim til Sigrúnar þar sem var lítið get-together, Steina, guðný, karen, kristín, sigrún, gunni, hjössi, gummi og e-ð fólk.  Ég og Karen rúntuðum smá og sóttum svo Guðný, Kristínu og Anton.  Tókum nokkra laugara og það var mikið verið að tala við fólk þarna á meðan keyrt var niður. svvoo fleeepppað:lol: Svo lögðum við bílnum niðrí bæ og röltum eitthvað smá, samt ekkert rosalega mikið.  Svo bara Farið heim uppúr 3. Og Arnar er sætastur:D

Sunnudagur:Ég vaknaði seinna en daginn áður, eðlilega því ég vakti lengur, Stebbi bróðir hringdi og ég sótti hann niður í faxafen, rataði alveg ein! Við fórum svo heim og horfðum á Revenge of the Nerds, sem er alveg truflað góð.  Svo kom Steina og ég kvaddi Stebba og Ernu, og við Steina fórum niður í Smáralind að kveðja Guðný og Sigrúnu. Lagt var svo af stað og komið heim um 10 í gærkveldi. Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að ég hata fugla!! ætla að koma með nokkra punkta afhverju

Þeir eru heimskir

FUGLAFLENSAN

lykta illa

eru með Fjaðrir!! how useless

skíta útum allt, enginn agi í þessu helvíti

Ráðast á mann,

Eru bara plein hálfvitar

Þetta eru svona meginatriðin afhverju ég hata fugla, þótt ég hafi nú alveg átt páfagauka á yngri árum, þá voru þeir nú allir með frekar stuttan líftíma. aumingjarnir.

Ég hef verið að pæla, það er ekki til neitt svona..úúúú the devil thing, þetta var bara gert til að hræða munka og nunnur í den.  Ekkert annað, ekki eins og jörðin opnist og komi upp eitthver boogey man.  Samt hefur þetta haft áhrif á mig, myrkfælin eins og ég veit ekki hvað.  Tek oft tilhlaup uppí rúm ef ég er búin að slökkva ljósin, veit aldrei hvað leynist þar undir;P

 

 

;; -She's not that kind of girl booger!  -  What? does she have a penis? ;;


» 7 hafa sagt sína skoðun

23.06.2006 12:25:01 / Agnes

blogg

;; Pussycat dolls-Button ;;

;; Styttist í þetta ;;

Ótrúlegt en satt þá erum við Steina að fara til Reykjavíkur eftir svona sirka...3 og hálfann tíma! keyrandi, ég keyra jú skil mí.  Þetta verður bara gaman, svo má reikna með okkur fyrir sunnan svona um klukkan 9-11, veit ekkert hversu lengi við verðum. 

En já í gær, fór í ræktina og svo beint heim.  Skutlaði mömmu og pabba í óvissferð og svo kom Stebbi bróðir mömmu heim. Búinn að vera á flakki um vestfirði.  Ég fór svo út og þreif bílinn minn hátt og lágt inní.  Þannig hann er mellufær suður. 

Ég er ekki að meika það að bíða eftir að komast suður!

en ég er farin að vinna, laters!

;; I am Cornholio, I need TP for my bunghole ;;


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.06.2006 10:22:21 / Agnes

Bingó

;; Cloud connected- In flames ;;

;; Landon Donovan! ;;

Jæja, leggja í hann á morgun, ótrúlegt en satt. 

Og ég hef ákveðið, ég þessi..voða litla fótboltamanneskja, hef ákveðið að fylgjast með leik USA og Ghana, sem er núna í dag.

(LANDON DONOVAN!

AHAHAH!!! til vinstri=)

Og talandi um fótbolta..! http://fifaworldcup.yahoo.com/06/en/w/player/184312_KAKA.html 

sprenghlægilegt nafn

HAHA og svo gleymdi ég að segja alveg frá því.  Að ég var að fara sallaróleg útí póst fyrir vinnuna um daginn.  Labba inní Neista í mínu mesta sakleysi ...neinei, er alveg að verða komin inn, FYRSTA sem ég sé er lítill krakki sem hleypur þvert yfir ganginn á sprellanum! og mamman á eftir að reyna að stoppa hörmungarnar, ég gat ekki að því gert, en ég hló og hló.  Alveg ein, eins og Hálfviti. 

Ég fór í ræktina og svona eftir vinnu í gær, fór svo beint heim og tjöruhreinsaði bílinn, sápuþvoði, bónaði og ryksugaði, get ekki sagt að þórður sé óhreinn! Svo þrífa hann inní í dag, meina, fyrst að ég og steina erum að fara suður á morgun, þá verður þórður að vera hreinn. 

En í gær kíktum ég og Aldís á smá rúnt. Vorum bara 2 og vorum í 2 tíma e-a eitthvað þannig.  Kíktum smá útí vík og keyptum okkur þeyting og svona. Hlógum eins og brjálæðingar á tímabili.

Road trip á morgun STEINA!!!!

 

;; You smell like ass, you smell like ass.  Am I complaining? ;;


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.06.2006 09:00:26 / Agnes

ekki morgun heldur hinn...:|

 ;; Dr.Mizta & Mr.Handsome-Kokaloca;;

;; Dadddara! ekki á morgun heldur hinn ;;

 

Jæja, brátt mun ég hverfa yfir helgi og þá mun ekkert heyrast í mér nema þá að ég komist í tölvu eitthverstaðar.  Sem ég er eiginlega viss um að ég geri afþví ég er tölvufíkill. Gjörsamlega.  Samt ekkert alvarlega.  Var nefnilega að heyra um daginn að það er komið meðferðarheimili fyrir þá sem eru með alvarlega tölvufíkn, þá sem sofa ekki afþví þeir þurfa að vera í tölvunni.  Þetta var minnir mig í Þýskalandi eða Sviss er ekki viss hvort það hafi verið.  En allaveganna, hægt að lækna þessa fíkn.

Image hosting by TinyPic

Það spáir alveg skítsæmilegu veðri fyrir mig og Steinu að keyra suður.  Það verður skýjað/sól hérna fyrir vestan. Svo þegar verðum komnar lengra verður glampandi sól og heitt. Þannig ætli ég þurfi ekki að taka með mér sólgleraugun.

Mig langar svo að hafa endalausa orku, geta gert það sem ég vil.  Ekki vera bara löt og geta ekki klárað hlutina.  Datt þetta svona í hug þegar ég náði ekki alveg settum markmiðum í ræktinni í gær.  Vera rosa duglega og vera í 2 tíma...ég entist í 1 tíma.  Þá var það komið gott og ég vildi helst bara fara að sofa.  Fór heim í sturtu og svo í letikast.  Kíkti reyndar smá á rúntinn um kvöldið.  Þrifum bílinn minn niðrá þvottaplani á höfninni.  Þá skoppaði upp úr mér einn gullmoli, frekar sad.

(kemur bíll á móti og sést ekki hver er inní honum)

Ég: Djöfulsins! hann horfir á mig eins og hann sé ÞROSKAHEFTUR

(bílinn keyrir framhjá og það er mongolíti í farþega sætinu)

Say no more. Vandræðalegt. En það var hlegið mikið af þessu get ég sagt.

En ég er mjög sátt við gestabókaskrifin undanfarið! komu alveg 3 einn daginn! örugglega met síðan ég opnaði þessa síðu.  Löngu kominn tími á þetta.

Image hosting by TinyPic

[hmm...Ricky martin með gat í naflanum:|]

;; The Secret of happiness, is to make others believe they are the cause of it ;;


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.06.2006 14:25:59 / Agnes

gestabókin! once and again

;;Augustana- Boston;;

;;Suður á föstudaginn;;

Halló halló.  Eru ekki allir alveg vangefið hressir? ég veit að ég er allaveganna það.  Ég og Einar skelltum okkur í smá mission í gær, sóttum klaka niður í Samkaup og skutluðumst yfir í súðavík með þá.  Fékk að keyra bílinn hans, skildi hann Þórð minn eftir einann heima.  Var samt komin frekar snemma heim og var bara löt og gerði fátt.  Sofnaði um 12, vaknaði svo 7 hress og ennþá meira hress og skellti mér í vinnuna.  Vinnan eins og gengur og gerist, misjafnlega mikið að gera, en alltaf fínt ef maður getur gert eitthvað.

Eftir vinnu er ég að pæla í að kíkja í ræktina, núna ætla ég að taka mig til og reyna að verða bikinifær fyrir sumarið.  Valda ekki hryllingi og gráti.

Image hosting by TinyPic

obbobbojj! Ég og Steina bara líklega að fara suður á næstu helgi! ótrúlegt en satt, förum keyrandi eftir vinnu kl 4 líklega, á eftir að vita hvort það verður kl 12 eða 4.  Kemur í ljós.  Á föstudagskvöldið verður þá tekinn hinn langþráði stelpurúntur verður tekinn, Karen og Guðný koma þá með.  Búin að sakna þeirra of mikið!

Ég fékk frekar skemmtilegt símtal áðan. ; x: er hann við? ég: haaa? x: já hann

hippedíhúbbewaddí, ekki hugmynd hver þetta var,

Btw mig langar í FÖT, langar í flott föt,  ég veit ekki hvað það er langt síðan ég keypti mér föt, en ég vanda alltaf þvílíkt valið og enda svo á því að vilja ekki ganga í þeim, þá hanga inní skáp og eru bara þar.  Alls ekkert sniðugt, en frjáls framlög eru vel þegin(þá er ég að meina peninga fyrir fötum ekki notuð föt).

 

 

 

Ég rakaði grasið heima í gær...er með harðsperrur

 

Ég var í minu mesta sakleysi að skoða fréttirnar á mbl.is og rakst á eina grein...sem er mjög spes...

Jackson þarf að mæta á ný fyrir dómara

Lögmenn popparans Michael Jackson undirbúa þessa dagana vörn í máli sem gæti orðið Jackson hið vandræðalegasta, en nú er rúmt ár liðið frá því að hann var sýknaður af ásökunum um að hafa misotað börn. Fyrrum aðstoðarmaður Jacksons hefur lögsótt hann, en málið snýst fyrst og fremst um óreiðukennd fjármál popparans.

 

á fólkið sem er að vinna þarna ekki að vera alveg þvílíkir snillingar í Íslensku?

 

 

;;Þú ert með greindarvísitölu á við glasamottu!;;


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 14:41:05 / Agnes

GESTABÓKINAAAAA!!

;;Orson - No tomorrow;;

;;þreytaaaa;;

Halló halló. Missed me? ég er hneyksluð yfir leti ykkar  í að skrifa í gestabókina mína. Ekki nógu sátt með ykkur. Hinsvegar fór ég í útilegu í á helginni, eða réttara sagt á ættarmót.

Föstudagur: Ég fór í vinnuna, var þar til 4.  Fór og sótti mína ástkæru móður í vinnuna og fórum heim og þar beið pabbi eftir okkur og var brunað af stað strax.  Þar sem vantaði liggur við helming ættarinnar á ættarmótið þá hélt ég að þetta myndi bara verða frekar kúkt ættarmót, ég myndi skemmta mér meira í póker við margfaldan Arabískan dverg sem væri skákmeistari.  En við vorum komin útí Reykjanes uppúr 7 þá var bara farið upp til ömmu þar sem hún var í íbúð og fengið sér að éta.  Fékk mér Hangikjöt og eitthvað með því.  Ég og Hafsteinn fórum útí fótbolta eins og verstu mongolítar. Svo komu Sif og Andrea, sem að ég vissi ekki einu sinni að væru frænkur mínar, en kom í ljós að þetta eru hinir mestu sykurpúðar.  Svo fórum við stelpurnar í sund og svo aftur í sund, og svo aftur og svo keyrðum við e-r útí rassgat.  Ætluðum að hoppa svo útí sjóinn um kvöldið, en annaðhvort var hann of heitur eða of kaldur, þannig ekki var hægt að gera mikið. Við sofnuðum svo um klukkan 5.

Laugardagur: Vaknaði ELDhress klukkan hálf 1 og þá fórum við 3 aftur í sund.  Fórum held ég alveg 5 sinnum yfir daginn, og í nokkra bíltúra.  Gerð var önnur tilraun til að stökkva útí sjó en allt kom fyrir ekki, og við hlupum heim með skottið á milli lappana. Um kvöldið var svo matur.  Var alveg skítsæmilegt salat en eftirrétturinn, ég er farin að halda að þetta hafi verið kardimommudropar með smá frómasi í.  Var svona eins og að reyna að þamba dropana.  Skildi kökuna mína allaveganna eftir.  Svo fórum við og gerðum svona smá skemmtiatriði, sem að tókst misvel, en bætti allaveganna uppí tímann sem við höfðum til að vera þarna í salnum, sem btw kostaði 15.000 kall og við vorum þarna í svona 30-60 mín.  Eftir það var aftur kikt í sund.  Náð í stóla og kastað þeim úti og setið þar.  Við fengum svo að gista í tjaldi, vorum þar 3, og vorum að spjalla saman til svona klukkan 5 eða 6.   Þá fórum við að sofa. 

Sunnudagur: Vaknaði um 1 aftur, þá var tekið saman og ég og pabbi keyrðum heim.  Mamma fór með Stebba bróðir sínum vestur.  Þegar ég kom heim, fór ég strax i sturtu að skola af mér þetta hveravatn.  Búin að fara of oft í sturtu þessa helgi.  Ég fékk mér að borða og svo kíkti ég út á rúntinn, vorum 3-5 á rúntinum til kl hálf 12.  Þá fór ég bara heim að sofa, en náði ekki að sofna strax..helvítis vesen.

Mánudagur: Ég vaknaði í morgun klukkan 7, var frekar þreytt sökum svefnleysis, sem mér lýst btw..ekkert á. Svo fór ég í vinnuna og þar beið ökuskírteinið mitt eftir mér, ekki einu sinni liðin vika síðan það var pantað.  Svo fór ég heim í hádeginu og þar beið launaseðill mín síðan seinustu vikuna í maí og var ég bara mjög sátt með hann.  Fór svo bara aftur í vinnu og er búið að vera sæmilegt að gera, sem er mjög gott, langaði bara að kasta inn hérna einni færslu fyrst ég er ekkert búin að blogga neitt yfir helgina.

Þetta er án efa lag helgarinnar, mæli eindregið með að þið náið í það.  Viðlagið er best<3

Let's go to a rave,
And behave like we're trippin'
Simply 'cause we're so in love.

Funny hats, shiny pants
All we need for some romance,
Go get dolled-up
And I'll pick you up.

There's no line for you and me
'Cause tonight we're V.I.P.
(I know somebody at the door).

I see that twinkle in your eye,
You shake that ass and I just die,
Let's check our coats and move out to the floor.

When I'm dancing with you
Tomorrow doesn't matter.
Turn that music up
'Till the windows start to shatter
'Cause you're the only one who can get me on my feet.
And I can't even dance.

Just look at me, Silly Me,
I'm as happy as can be-
I got a girl who thinks I rock.
And tomorrow there's no school,
So lets go drink some more Red Bull,
And not get home 'till about 6:00.

When I'm dancing with you
Tomorrow doesn't matter.
Turn that music up
'Till the windows start to shatter
'Cause you're the only one who can get me on my feet.
And I can't even dance.

Everybody here is staring
At the outfit that you're wearing
I love it when they check you out.
Cover's only twenty bucks,
And even if the dj sucks
It's time to turn this mutha out!

When we're together
When we're together
There's no tomorrow,
There's no tomorrow
When we're together
There's no one in the world
but you and me oh
you and me oh
You and me

;;Hate the sin, love the sinner;;.


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.06.2006 08:53:48 / Agnes

já!

;;Ragnheiður Gröndal- Með þér;;

;;Jahá;;

Jæja, afmælið mitt búið.  Gerðist ekkert mikilfenglegt yfir daginn.  Var bara þessi rúntur í gær sem stóð uppúr.  Mjög gaman að hitta þessar elskur þó svo að ég hafi fari snemma heim. Eða rétt um 10.  Í gær já þegar mætti til vinnu var pabbi búinn að tala við mig um að ég ætti að kaupa kökur og svona til að allir gætu fengið í kaffinu.  Ég fór og keypti e-ð smá. Kom með það uppá kaffistofu og þá var nammi þar inni og hellingur af meira gúmmelaði.  Þannig borðið var stappað af því.  En það er kannski e-ð eftir sem að maður getur fengið sér núna.  Eftir vinnu í gær, skellti ég mér í rætkina.  Er orðin of löt. Nenni ekki að vera lengur en í eina klst og hálftíma, frekar lélegt. Ég sem ætlaði að reyna að vera bikinifær í sumar.  Já neinei.  Svo er fimmtudagur núna, right? og á morgun fer ég þá að skella mér á þetta ættarmót býst ég við, inní Reykjanes, verður frábært að hitta fólkið.

Það er minna en mánuður í dk.  Furðulegt.  En samt er þetta kannski smá langt að vera í 2 vikur.  En þetta reddast. Verðum í Kolding í e-u húsi, ekki viss hvort að það sé e-ð mikið hægt að gera þarna, en ég tek nú tölvuna með mér þannig þið fáið örugglega daglega uppfærslu af þessu.

Ég er byrjuð að hata broskalla, svona sem maður gerir í bloggum, ofnotaði þá útí ystu æsar bara fyrir stuttu.  Og svo þegar maður er á msn, þetta er bara orðið þannig að mér finnst eins og það sé skylda að gera a.m.k einn broskall í endanum á hverri setningu. Verð að reyna að venja mig af þessu. 

btw, ég átti afmæli í gær!! ef það fór framhjá ykkur

;; If you want a friend in Washington, get a dog. ;;

Eitt svona sætt að lokum.

 

 
 

» 4 hafa sagt sína skoðun

14.06.2006 08:27:50 / Agnes

afmæli!!

Pendulum-Slam

Bílpróf

Ég er hvorki meira né minna en komin með bílpróf, djöfull er það nice. Kíktum nokkur á rúntinn í gær og vorum til um það bil 1. Ekki sniðugt að vera of lengi útaf vinnunni.  Svo var alveg ofur furðulegt í morgun.  Pabbi fór og ég var ein eftir og auðvitað átti ég þá að keyra bílinn niður í bæ! en er alltaf með sting í maganum því mér finnst eins og ég eigi ekki að vera að keyra ein:O sé bara að stelast til að keyra.  En svo er ekki sem betur fer.  Ég búin að fá slatta af afmæliskveðjum bara í gær og í morgun.  Ótrúlegasta fólk að óska manni til hamingju.  Svo áður en ég fór að sofa, talaði ég við Arnar í smátíma og steinasofnaði svo=*

Í dag eftir vinnu ætla ég að skutlast inní Bónus, því ég á víst eitt stykki skattkort þar, betra að hafa það ef launaseðilinn verður þykkur8) Svo liggur leiðin í ræktina.  Í kvöld ætla ég svo að taka Steinu og Aldísi með mér á rúntinn og ætlum að taka einn stelpurúnt.

Btw, skrifaði happy birthday í google....og þetta var meðal annars sem kom í leitinni. Sé ekkert happy við þetta.

En ég er farin að halda áfram að vinna. LATER!

Agnes afmælisbarn.


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.06.2006 10:18:28 / Agnes

titill?

;;Supermassive black hole-Muse;; 

;;2 dagar;; 

 

Djöfulsins kuldi er hérna.  Ég var í gær að þrífa bílinn, í góðum fíling og var ekkert að búast við neinum kulda.  Þar sem ringdi bara eins og ég veit ekki hvað.  Svo í gær þegar ég var að fara að sofa, þá gat ég ekki sofnað, rigndi eins og...djúsbrúsi. Sofnaði um 1. Og er smá þreytt núna verð ég bara að segja.  Svo í morgun þá fór ég út, fara að skella sér til vinnu og þá var bara búið að snjóa smá í fjöllin og skítkalt úti! liggur við að ég fari að flytja af þessu litla skítalandi.  Það er ótrúlegt hvað það er ömurlegt veður.  Ég er alls ekki að fíla þetta.  Eins gott að það verði gott veður í dk þegar ég fer þangað.  Þá ætla ég heldur betur að liggja úti alla daga.  Nema hvað þótt að ég væri frekar til í eina sveitta spánarferð.

Sem minnir mig á það, þegar ég fór til Spánar eftir ferminguna mína, allir þessir spánverjar, það er eins og þeir hafi aldrei séð kvennfólk áður. Og bara ef þeir sjá ljóshært kvk ,fara þeir að þrossast, þótt að manneskjan sé 300kg+ þannig.  Eru frekar stupid,

 

Oh baby dont you know I suffer?
Oh baby can you hear me moan?
You caught me under false pretenses
How long before you let me go?

You set my soul alight
You set my soul alight

(You set my soul alight)
Glaciers melting in the dead of night
And the superstars sucked into the supermassive

(You set my soul alight)
Glaciers melting in the dead of night
And the superstars sucked into the 'supermassive'

I thought I was a fool for no-one
Oh baby I'm a fool for you
You're the queen of the superficial
And how long before you tell the truth

You set my soul alight
You set my soul alight

(You set my soul alight)
Glaciers melting in the dead of night
And the superstars sucked into the supermassive

(You set my soul alight)
Glaciers melting in the dead of night
And the superstars sucked into the 'supermassive'

Supermassive black hole
Supermassive black hole
Supermassive black hole

Glaciers melting in the dead of night
And the superstars sucked into the supermassive

Glaciers melting in the dead of night
And the superstars sucked into the supermassive

(You set my soul alight)
Glaciers melting in the dead of night
And the superstars sucked into the supermassive

(You set my soul alight)
Glaciers melting in the dead of night
And the superstars sucked into the supermassive

Supermassive black hole
Supermassive black hole
Supermassive black hole

Þetta er þvílíkt gott lag, mæli eindregið með því.  Og eins og hefur líklega ekki farið framhjá ykkur, vegna spennings í mér.. á morgun þá kíki ég á afmælisrúntinn. 

Í sambandi við ættarmótið sem að ég skelli mér á næstu helgi, þá jaðrar við því að ég fái að sofa bara inní bílnum, kemur ekki til greina að ég sofi úti ef veðrið fer ekki að bæta sig.   Þótt þetta land heiti Ísland þá þarf ekki að taka það einum of alvarlega.

;;You would worry less about what people think if you knew how little they did;;


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.06.2006 18:37:40 / Agnes

tjald

;;Assasain - Muse;;

;;hausverkur!;;

Ég er með vangefið mikinn hausverk, þoli það ekki.! var að þrífa bílinn minn áðan.  Var inní honum að þrífa innréttinguna, fattaði ekki að það væri kannski ekki beint sniðugt að hafa enga glugga opna og vera að spreyta úr brúsa sem stendur utaná getur valdið svima og sljóleika.  Þannig auðvitað endaði ég með þennann ótrúlega hausverk, sem er að gera útaf við mig.  Var að kveikja núna á því að ég á bíl! ég er ekki að trúa því.  Fattaði það alls ekki fyrst og fannst þetta bara vera e-r leigubíll, bara plebbalegt e-ð. 

Í gærkvöldið fór ég út á rúntinn með Aldísi og Steinu.  Fórum á bílnum mínum og sóttum Steinu í vinnuna.  Það var rigning og svona æðislegt veður, eins og er í dag, sem gerði það að verkum að ég get ekki bónað bílinn í dag.  En já yfir í allt annað.  Við rúntuðum til 2 þá þurftum við að skila Steinu.  Fórum svo og rúntuðum til 3.  Þá fór ég heim.  Vaknaði ekki fyrr en hálf 1 í morgun og var ekki nærrum því búin að sofa allt sem hefði þurft að sofa, enda er ég þreytt eins og ég veit ekki hvað núna. 

Ég er annars að fara á ættarmót á næstu helgi, sem verður bara gaman, nema hvað að ég nenni ekki að taka tjaldið mitt með.  Það er leiðinlegt að taka það saman, það hindrar mig alveg í því að tjalda. 

;;Dreams are pictures of feelings;;


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Tónlistarmyndbönd
costa rica
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1510 dögum